Sameining stéttarfélaga til skoðunar
Þrjú aðildarfélög BHM hefja viðræður um sameiningu félaganna í nýtt öflugt stéttarfélag.
Aðalfundur FÍF 2023 samþykkti tillögu þess efnis að hefja viðræður við önnur stéttarfélög háskólamenntaðs fólks um að sameinast í nýtt og öflugt stéttarfélag sérfræðinga. Markmið viðræðnanna væri að kanna kosti þess að skapa saman stéttarfélag sem byggir á traustum og fjölbreyttum grunni og er í stakk búið til að takast á við áskoranir á vinnumarkaði framtíðarinnar.
Nú hefur FÍF hafið viðræður við tvö aðildarfélög innan BHM, Fræðagarð og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU), að byggja upp nýtt öflugt stéttarfélag fyrir 21. öldina, stéttarfélag sérfræðinga sem mætir breyttum kröfum á vinnumarkaði. Stjórnir félaganna horfa sérstaklega til reynslu systursamtaka sinna á Norðurlöndunum þar sem rótgróin stéttarfélög hafa sameinast í kröftugar einingar.
Sameiningaviðræðurnar hófust formlega þann 30. mars síðastliðinn þegar stjórnir félaganna þriggja samþykktu verkáætlun og skipulag fyrir starfið framundan. Settir hafa verið á laggirnar vinnuhópar um helstu áskoranir og tækifæri sem felast í þessari vegferð. Stjórnir félaganna funda næst saman þann 22. apríl og verður þá freistað að ganga frá breiðu línunum í viðræðunum.
FÍF leggur mikla áherslu á að starfið framundan sé gagnsætt og að félagsfólki gefist tækifæri að taka þátt í stefnumótun nýs félags. Gert er ráð fyrir að haldið verði opið stefnumótunarþing á haustmánuðum þar sem félagsfólki félaganna þriggja er boðið að móta saman stefnu og gildi hins nýja félags.
Kristmundur Þór Ólafsson, formaður FÍF„Það er ekki á hverjum degi sem maður býr til nýtt stéttarfélag. Það er þó verkefnið sem liggur fyrir næstu mánuðina. Það eru góðar fréttir að þessi þrjú rótgrónu og öflugu stéttarfélög hafi tekið upp viðræður um að stofna nýtt, öflugt og öðruvísi stéttarfélag fyrir sérfræðinga á Íslandi. Mjög spennandi vinna framundan og gaman að vera hluti af þeim frábæra hópi fólks sem hóf þessa vegferð.“
