Aukaaðalfundur FÍF afstaðinn
Tillaga um sameiningu í Visku samþykkt
Aukaðalfundur FÍF var haldinn síðdegis í gær, þar sem fundargestir samþykktu samhljóða tillögu stjórnar að FÍF sameinist í stéttarfélagið Visku.
Á þessu ári hefur stjórn FÍF átt í formlegum viðræðum við systurfélög sín í BHM, Fræðagarð og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, um að sameinast í nýtt og öflugt stéttarfélag. Aðalfundur Fræðagarðs samþykkti tillögu um sameiningu fyrr í vikunni, og nú bætist FÍF í hópinn sem einn stofnfélagi Visku. Viska – stéttarfélag er stærsta aðildarfélag BHM og eitt stærsta stéttarfélag sérfræðinga á Íslandi.
Mikilvægt er að taka það fram að við sameiningu verður tryggt að öll réttindi félagsfólks FÍF flytjist yfir til Visku eins og um samfellda félagsaðild væri að ræða. Réttindi í sjóðum BHM haldast óbreytt hjá félagsfólki. Félagsgjöld í Visku eru hin sömu og hjá FÍF.
Viska tekur formlega til starfa fljótlega á nýju ári. Á næstu vikum og mánuðum fær félagsfólk að heyra meira um Visku – stéttarfélag og þær spennandi nýjungar sem stofnun félagsins hefur í för með sér.