Aukaaðalfundur FÍF
Tilefni fundarins er tillaga stjórnar um að FÍF sameinist í stéttarfélagið Visku
Stjórn Félags íslenskra félagsvísindamanna (FÍF) boðar til aukaaðalfundar miðvikudaginn 1. nóvember kl. 17:00, í Borgartúni 6 á 4. hæð þar sem aðgengi er fyrir öll. Fundurinn er bæði stað- og fjarfundur.
Tilefni fundarins er að leggja til afgreiðslu aðalfundartillögu þess efnis að sameinast í stéttarfélagið Visku.
Tillaga stjórnar
Stjórn FÍF leggur til við aðalfund FÍF að sameinast í stéttarfélagið Visku, á grundvelli samkomulags stjórna FÍF, Fræðagarðs og SBU frá 16. október 2023.
Á aðalfundi FÍF 27. febrúar 2023 var samþykkt tillaga þess efnis að hefja viðræður við önnur stéttarfélög háskólamenntaðs fólks um að sameinast í nýtt og öflugt stéttarfélag sérfræðinga. Þann 30. mars síðastliðinn hóf stjórn FÍF formlegar viðræður við Fræðagarð og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU) um sameiningu félaganna í stórt og öflugt stéttarfélag sem byggir á traustum og fjölbreyttum grunni og er í stakk búið til að takast á við áskoranir á vinnumarkaði framtíðarinnar.
Viðræðurnar hafa gengið vonum framar og 16. október 2023 skrifuðu formenn FÍF, Fræðagarðs og SBU undir samkomulag þess efnis að sameina þessi þrjú stéttarfélög í eitt stórt stéttarfélag sem hefur fengið nafnið Viska. Viska – stéttarfélag verður stærsta aðildarfélag BHM og eitt stærsta stéttarfélag sérfræðinga á Íslandi.

Stjórn FÍF leggur til við aðalfund FÍF að sameinast í stéttarfélagið Visku. Það ógildir ekki samþykki aukaaðalfundar félagsins á tillögunni, þó að tillaga um sameiningu verði felld á aukaaðalfundi SBU. Verði sameiningin samþykkt, verður FÍF afskráð úr fyrirtækjaskrá.
Við sameiningu verður tryggt að öll réttindi félagsfólks FÍF flytjist yfir til Visku eins og um samfellda félagsaðild væri að ræða. Réttindi í sjóðum BHM haldast óbreytt hjá félagsfólki. Félagsgjöld í Visku eru hin sömu og hjá FÍF. Fullt samræmi verður milli réttinda alls félagsfólks í Visku.
Ársreikninga FÍF, Fræðagarðs og SBU síðustu þriggja ára er hægt að finna hér.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
1. Fundur settur.
a. Skipaðir fundarstjóri og fundarritari
2. Tillaga stjórnar:
a. Stjórn FÍF leggur til við aðalfund FÍF að sameinast í stéttarfélagið Visku, á grundvelli samkomulags stjórna FÍF, Fræðagarðs og SBU frá 16. október 2023.
3. Önnur mál
Félagsfólk sem hyggst mæta á fundinn er beðið um að skrá sig.