Aðild að stéttarfélagi er ávísun á öryggi. Félagsfólk nýtir samtakamátt sinn til að knýja á um bestu mögulegu kjör sín og réttindi. Gott stéttarfélag veitir persónulega ráðgjöf og þjónustu, allt frá ráðningarsamningi til starfsloka. Það opnar einnig aðgengi að margskonar fríðindum og fjárhagslegum stuðningi og er traustur bakhjarl þegar á þarf að halda.
Félag íslenskra félagsvísindamanna gerir kjarasamninga fyrir hönd síns félagsfólks. Einnig eru gerðir stofnana- og fyrirtækjasamningar og veitt ráðgjöf við gerð ráðningasamninga. Þannig fylgir stéttarfélagið því eftir að kjör og réttindi séu alltaf í takt við það besta sem völ er á.
Með aðild að Félagi íslenskra félagsvísindamanna opnast möguleikar á margvíslegum styrkjum. Þar skiptir þátttaka félagsins í BHM miklu máli. Sjúkra- og styrktarsjóðir veita fjölbreytta styrki og öflugt öryggisnet en starfsmenntasjóðirnir styðja við sí- og endurmenntun.
FHSS veitir félagsfólki sínu aðgang án endurgjalds að alls kyns fræðslu, fyrirlestrum og námsefni sem jafnt getur nýst í leik og starfi. Oft er efnið rafrænt og hægt að lesa, horfa og hlusta við hentugleika.
Á þessari síðu má finna fundargerðir af stjórnarfundum FÍF.
Stjórnarfundur 16. janúar
Stjórnarfundur 25. janúar
Stjórnarfundur 7. febrúar
Stjórnarfundur 13. janúar
Stjórnarfundur 3. febrúar
Stjórnarfundur 23. febrúar
Stjórnarfundur 4. mars
Stjórnarfundur 6. apríl
Stjórnarfundur 25. maí Stjórnarfundur 23. júní
Stjórnarfundur 11. ágúst
Stjórnarfundur 26. október
Stjórnarfundur 24. nóvember
Stjórnarfundur 19. desember
Allir fundir stjórnar